fullt af nýjum myndum. Þegar við stigum inn fyrir alþjóðlegu höfnina okkar þá tók Siggi spek á móti okkur með lúðraþyt og fjöri og við vorum næstum því dottnir í sjóinn. Maðurinn kom út dansandi í takt við lúðrasveitina sína sem hann var búinn að setja í gang og bað okkur að skrifa í gestabókina sína og lét okkur hafa nafnspjald merkt gestur en enginn okkar heitir það

...jæja við vildum ekki móðga hann og létum hann halda að við hétum allir gestur. Svo fórum við um borð og Helgafell og skoðuðum okkur um og þetta er eins og sjávarhótel. Gilli sagði að þetta væri alveg 4 stjörnur eins og thorshamar

nei djók. Við byrjuðum að fara inn á skrifstofu eða lobbýið eins og gilli myndi orða það ;P hahaha. Þar ræddum við málin og mönuðum okkur í að fara upp í brú, og jú viti menn það leið næstum því yfir hómer þegar hann frétta að það væri engin lyfta þarna upp til "himna". en hann komst loks upp með herkjum og móðandi og másandi eins og múlasni. Við skoðuð brúnna gaumgæfulega og þeyttum flautuna og allt (heyrðu þið það ? hún var betri en lúðrasveitin hans Sigga spek

) Svo var haldið ofna í vél og þá þurftum við að príla niður allar þessar tröppur og meira til, því jú eins og fólk ætti að vita þá er vélin mjög neðarlega í bátum. Svo þegar þangað var komið þá tók á móti okkur vélstjórinn sem vissi bókstaflega allt greinilega áhugavélstjóri þarna á ferð. Og þar fengum við gaumgæfulega kennslu í vélfræðum og erum núna allir komnir með 4.stigið í vélstjórn og þökkum vélstjóranum góða kennslu.